Makrílveiðar loksins að glæðast í Smugunni

„Við erum hressari núna en við höfum verið síðustu daga. Við erum loksins komnir í fisk og við og Beitir erum búnir að taka eitt hol. Hvort skip fékk 100 tonn og er aflanum dælt um borð hjá okkur. Þetta er dálítið síldarblandað, ég hugsa að um 30% af aflanum sé síld. Á móti kemur að makríllinn sem fæst hér er 470-480 gramma fiskur, mun stærri en við höfum verið að fá að undanförnu," segir Þorkell Pétursson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK í spjalli á vefsíðu Síldarvinnslunnar.


"Þegar við köstuðum vorum við búnir að leita í þrjá sólarhringa ásamt fleiri skipum með hverfandi árangri. Þetta var því mikið reiðileysi og menn eru ósköp fegnir að vera búnir að finna eitthvað. Við erum núna um 460 mílur frá Neskaupstað þannig að þetta er býsna norðarlega."

 

Einnig kemur fram hjá Þorkeli að ef þeir hefðu ekki fundið þetta var förinni enn norðar, en vonandi gerist þess ekki þörf.

"Auðvitað er svekkjandi að upplifa trega veiði en hafa ber í huga að í fyrra hófst ekki almennileg veiði í Smugunni fyrr en um mánaðamótin júlí- ágúst,“ segir Þorkell.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.