Mastur brotnaði og umferðarskilti skemmdust um helgina

Mastur Vegagerðarinnar í Hvalnesskriðum sem á voru tvær myndavélar og þrjár sólarsellur brotnaði í ofsaveðri sem gekk yfir Austfirði um helgina. Fjölmörg umferðarskilti fuku á hliðina eða skemmdust á þessum slóðum.

„Vegurinn var þakinn möl og umferðarmerki liggja víða á hliðinni og stikur hafa feykst í burtu. Þá voru fjölmörg umferðarmerki á Hlíðarsandi skemmd, það er eins og rúllað hafi verið upp á þau,“ segir Þorleifur Olsen flokksstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Höfn á vefsíðu Vegagerðarinnar þar sem fjallað er um málið.

„Við vorum að koma frá því að hreinsa brakið en þetta er töluvert tjón. Báðar myndavélarnar eru ónýtar og ein af þremur sólarsellum. Þá skemmdist stélið á rafmagnsrellu og spaðarnir fuku út í veður og vind.“

Veðrið fór mikinn s.l. laugardag á austanverðu landinu, hviður fóru upp í 50 metra á sekúndu. Slík veður eru þó ekki óþekkt á þessum slóðum, sér í lagi á Hlíðarsandi. Þorleifur segir þetta í annað sinn sem mastur brotnar á svipuðum stað. „Það gerðist síðast fyrir rúmum áratug.“

Myndavélarnar á mastrinu eru hluti af Vegsjá Vegagerðarinnar sem er  sem er safn vefmyndavéla um allt land þar sem hægt er að fylgjast með færð og aðstæðum á vegum. Vaktstöð Vegagerðarinnar nýtir einnig vélarnar til upplýsingaöflunar.

Einhvern tíma tekur að setja upp nýtt mastur með nýjum myndavélum og á meðan verður ekki hægt að skoða myndir frá Hvalnesskriðum í Vegsjánni.

Mynd: Vegagerðin

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.