Meirihlutinn með yfirburði í Múlaþingi
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í sveitarstjórn Múlaþings bætir duglega við sig, tveimur fulltrúum, samkvæmt niðurstöðum kosningakönnunar Austurfréttar/Austurgluggans.Þetta sýna fyrstu útreikningar á niðurstöðum könnunarinnar sem opin var í síðustu viku. Ríflega 250 svör bárust úr Múlaþingi. Aldursdreifing svarenda var ágæt en karlar í talsverðum meirihluta, 58%. Góð þátttaka frá Seyðisfirði en lakari frá Djúpavogi.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur með 32,5% sem myndi skila honum fimm fulltrúum en hann á fjóra í dag. Framsóknarflokkurinn bætir einnig við sig, 21,7% og þrjá fulltrúa en á í dag tvo. Austurlistinn fær 17,3% sem eru tveir kjörnir fulltrúar, tapar einum. Vinstrihreyfingin – grænt framboð fær 10,8% og heldur sínum fulltrúa. Miðflokkurinn mælist með 5,6% og tapar sínum fulltrúa.
Þar er þó vert að hafa í huga að þegar spurt er um hvað fólk hafi kosið árið 2020 mælist Miðflokkurinn töluvert lægri en hann fékk í kosningunum en Sjálfstæðisflokkurinn hærri. Út frá því gæti Miðflokkurinn átt fylgi inni á kostnað Sjálfstæðisflokks. Tólf prósent eru óákveðin.
Talsverða hreyfingu þarf þó til að fulltrúarnir fari á hreyfingu. Næsti fulltrúi inn er þriðja sæti Austurlista sem myndi slá út fimmta mann Sjálfstæðisflokks. Til þess þarf Austurlistinn að bæta við sig þremur prósentustigum. Þar á eftir kæmi síðan fulltrúi Miðflokks. Ekki munar þó miklu á þessum breytingum og að Sjálfstæðisflokkurinn komi með hreinan meirihluta út úr könnuninni.
Þegar spurt er hvaða lista væri næst líklegast að fólk kysi eru 25% óviss en síðan eru Framsókn og Austurlisti jöfn með 21,5%, Sjálfstæðisflokkurinn 15,8%, Vinstri græn 10,9% og Miðflokkur 6%.
Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem fer fyrir Sjálfstæðisflokki, mælist með mest traust oddvitanna, 3,37 af 5 mögulegum. Jónína Brynjólfsdóttir frá Framsókn fær 3,22, Hildur Þórisdóttir frá Austurlista 3,03, Helgi Hlynur Ásgrímsson frá VG 2,84 og Þröstur Jónsson Miðflokki 2,2.
Þegar spurt er út í hvaða málefni skipta kjósendur mestu við val á lista fá samgöngumál hæsta einkunn, 4,5 af 5. Húsnæðismál fá 4,4, heilbrigðis- og umönnunarmál 4,39, atvinnumál 4,36 og fólkið á listanum 4,35. Lægstu einkunnina fá menningarmál, 3,44.