Múlaþing: Framsókn og VG vinna fulltrúa
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokksins í Múlaþingi heldur og gott betur en það, bætir við sig. Vinstrihreyfingin – grænt framboð bætir við sig fulltrúa á kostnað Austurlista og Framsóknarflokkur vinnur einn frá Sjálfstæðisflokki.Úrslit úr Múlaþingi lágu fyrir skömmu fyrir klukkan þrjú í nótt. Talning gekk hratt fyrir sig þegar hún komst af stað en hún tafðist þar sem tíma tók að stemma af kjörsóknartölur.
Á kjörskrá voru 3.663. 2.427 greiddu atkvæði sem gerir 66,3% kjörsókn. Kjörsókn árið 2020 var 63,47%
Framsóknarflokkur: 587 atkvæði, 24,2%, 3 fulltrúar. Framboðið fékk 19,2% og 2 fulltrúa 2020.
Sjálfstæðisflokkur: 684 atkvæði, 28,2%, 3 fulltrúar. Framboðið fékk 29,3% og 4 fulltrúa 2020.
Austurlisti: 470 atkvæði, 19,4%, 2 fulltrúar. Framboðið fékk 27,2% og 3 fulltrúa 2020.
Miðflokkur: 207 atkvæði, 8,5%, 1 fulltrúi. Framboðið fékk 11% og 1 fulltrúa 2020.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð: 392 atkvæði, 16,2%, 2 fulltrúar. Framboðið fékk 13,4% og 1 fulltrúa 2020.
Auðir seðlar: 75
Ógildir: 3
Samkvæmt útreikningum Austurfréttar hefði næsti maður inn verið fjórði fulltrúi Sjálfstæðisflokks á kostnað þriðja fulltrúa Framsóknarflokks. Töluverð breyting hefði þó þurft að verða til þess.
Kjörnir fulltrúar
Framsóknarflokkur:
Jónína Brynjólfsdóttir
Vilhjálmur Jónsson
Björg Eyþórsdóttir
Sjálfstæðisflokkur
Berglind Harpa Svavarsdóttir
Ívar Karl Hafliðason
Guðný Lára Guðrúnardóttir
Austurlisti
Hildur Þórisdóttir
Eyþór Stefánsson
Miðflokkur
Þröstur Jónsson
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
Helgi Hlynur Ásgrímsson
Ásrún Mjöll Stefánsdóttir