Ný Norðfjarðargöng tilbúin 2015?
Ný Norðfjarðargöng verða tekin í notkun árið 2015 og íslenskum sveitarfélögum verður fækkað verulega á næstu árum. Þetta kemur fram í framtíðarsýn samgöngumálaráðherra sem kynnt var í dag.
Þar er gert ráð fyrir að framkvæmdum við Norðfjarðargöng ljúki árið 2015. Samgöngumiðstöð í Reykjavík á að taka í notkun um mitt ár 2012 og flugstöðin á Akureyri á að verða að samgöngumiðstöð á sama tíma. Gerð Vaðlaheiðarganga á að hefjast á næsta ári og strandsiglingar eiga að hefjast á ný.
Í greinargerð með áætluninni segir að samgöngur er gert ráð fyrir breyttri fjármögnun framkvæmda, til dæms vegtollum í ákveðinn tíma, að félagshagfræðilegum aðferðum verði beitt við forgangsröðum verkefna, almenningssamgöngur verði efldar, öryggi aukið og áhersla lögð á umhverfisvænari samgöngur. Þar er bæði heitið stuðningi við rannsóknir á repjuolíu og að árið 2020 verði öll olía skipaflotans blönduð vistvænu eldsneyti.
Í framtíðarsýn ráðherrans er gert ráð fyrir að sveitarfélög landsins verði 20 árið 2022 og verkaskipting ríkis- og sveitarfélaga verði breytt, meðal annars með flutningi á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga á næsta ári og málefnum aldraðra árið 2012.
Nánar má lesa um framtíðarsýn og stefnumótunina á vef sasmgöngumálaráðuneytisins.