Nýr bæjarstjóri kynnir sig fyrir Sjálfstæðismönnum
Páll Björgvin Guðmundsson, nýr bæjarstjóri í Fjarðabyggð, verður gestur bæjarmálafundar Sjálfstæðisfélaganna í Fjarðabyggð á morgun.Fundurinn verður haldinn í Eskjusalnum miðvikudaginn 1. september klukkan 20:00. Bæjarmálin verða þar rædd auk þess sem Páll Björgvin mætir og kynnir sig.