Nýtt smit eftir landamæraskimun
Fimm einstaklingar eru nú í einangrun vegna Covid-19 veirunnar á Austurlandi. Allir greindust við komuna til landsins.Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Fimm einstaklingar eru í sóttkví samkvæmt tölum Covid.is.
Aðgerðastjórnin hvetur Austfirðinga til áframhaldandi árvekni og minnir á samskiptafjarlægð, grímunotkun, handþvott og sprittnotkun.
Ennfremur að forðast margmenni, óþarfa ferðalög út fyrir fjórðunginn og að virða ný fjöldatakmörk þar sem að hámarki mega 20 manns koma saman í sama rými.
Þá er ítrekað mikilvægi þess að fólk með einkenni Covid-19 fari alls ekki í vinnu, skóla, verslanir eða á annan hátt út á meðal fólks, heldur haldi sig heima og hafi strax samband við síma 1700 eða heilsugæsluna.
„Bólusetning, þó í litlum mæli sé, er hafin og er merki þess að brátt styttist í Covid-vegferðinni, þó enn sé langt eftir. Höldum okkar takti með það að markmiði að komast öll saman og heil heilsu á leiðarenda,“ segir í tilkynningu aðgerðastjórnar.