Örninn numinn á brott
Tréskúlptúrnum Erninum, sem undanfarin þrjú ár hefur staðið við Landsbankann á Egilsstöðum, var stolið um helgina. Töluvert átak hefur þurft til að ná listaverkinu af undirstöðum sínum.Styttan var fyrst fjarlægð af stalli sínum fyrir rúmri viku en fannst þá falin inni í runna í nágrenninu. Ekki er vitað hverjir voru þá að verki. Í kjölfarið var gengið betur frá henni og hún boltuð niður í steyptar undirstöðurnar.
Árvökull starfsmaður áhaldahússins tók eftir því í gærmorgunn að styttan var horfin af stallinum, þar sem hún hafði þó staðið um helgina.
Töluvert átak hefur þurft til að ná henni eins og sést á verksummerkjum. „Henni hefur verið ruggað til og síðan rifin upp. Undirstöðurnar halla aðeins,“ segir Óðinn Gunnar Óðinsson, skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs.
Styttan er um 70 sentímetrar á hæð og vegur um 40-50 kg. Örninn var skorinn út af Grétari Reynissyni en er í eigu sveitarfélagsins. Hún hefur undanfarin ár staðið á grasbletti milli Fagradalsbrautar og Landsbankans.
Búið er að kæra verknaðinn til lögreglu. Þau sem kunna að hafa upplýsingar um hvar Örninn er niðurkominn geta komið ábendingum til lögreglunnar á Austurlandi í síma 444 0600, netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í gegnum Messenger á Facebook síðu Lögreglunnar á Austurlandi.
Mynd: Grétar Reynisson