Ríflega 50 dýr eftir af sumarveiðinni
Ekki náðist að veiða 55 hreindýr af þeim sem heimilt var að veiða í sumar. Meirihluti þeirra dýra sem ekki náðist var úthlutað á svæði 2.Síðasti dagur hreindýraveiða þetta sumarið var í fyrradag og vika er síðan hætt var að veiða tarfa. Alls veiddust 920 dýr af þeim 1021 dýra kvóta sem gefinn var út fyrir árið.
Rétt er þó að hafa í huga að 46 kýr á svæðum 8 og 9, sem tilheyra Sveitarfélaginu Hornafirði, er aðeins heimilt að veiða í nóvember sem þýðir að 55 dýr ganga af sumarkvótanum.
Á svæðum 1, 3, 4 og 9 veiddust öll þau dýr sem heimilt var að veiða í sumar. Á svæðum 8 og 5 vantar einn tarfa á hvoru svæði en á svæði 6 eina kýr. Á svæði sjö vantar 1 kýr og 3 tarfa.
Á svæði 2, sem til margra ára hefur verið helsta veiðisvæðið veiddust 122 dýr af þeim 170 sem heimilt var að veiða eða rúm 70% af útgefnum kvóta. Þar vantar því 48 dýr upp á veiðina.
Það segir ekki alla söguna. Eins og Austurfrétt hefur greint frá hafa bæði veiðimenn og líffræðingar áhyggjur af því að hreindýrin séu horfin af Fljótsdalsheiði, sem í áratugi hefur verið þeirra helstu sumarlendur.
Vegna þessa var um miðjan ágúst gripið til aðgerða sem annars vegar voru að gefa veiðimönnum, sem úthlutað hafði verið leyfi á svæði 2, kost á að skila inn leyfunum og fá þau endurgreidd að fullu. Samkvæmt frétt á vef Umhverfisstofnunar frá í síðustu viku höfðu um 50 manns nýtt þann möguleika, sem skýrir að miklu leyti þau dýr sem ekki veiddust á svæðinu.
Hins vegar var heimilt að veiða stóran hluta leyfanna á öðrum veiðisvæðum. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun voru gefin leyfi fyrir að veiða um 50 dýr af svæði 2 annars staðar. Endanleg tala liggur ekki fyrir en flest leyfanna fluttust yfir á svæði 1 og síðan svæði 6.
Eftir stendur þó að um 70 af þeim 170 dýrum eða rúm 40% sem heimilt var að veiða á svæði 2 virðast hafa verið felld þar. Eftir að reglunum var breytt um miðjan ágúst var nánast hætt að veiða á svæðinu. Í frétt Umhverfisstofnunar segir að rannsaka þurfi betur hvað valdi fækkun dýra á svæði 2 síðustu ár og endurskoða úthlutun veiðikvóta á svæðinu með það í huga.