Rjúpnaveiðitímabilið að hefjast
Veiðitímabil á rjúpu hefst föstudaginn 29. október nk. og stendur til sunnudagsins 5. desember. Á tímabilinu verður heimilt að stunda veiðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og verða veiðidagar því átján talsins. Þetta er óbreytt fyrirkomulag frá því í fyrra.
Að mati Náttúrufræðistofnunar Íslands var veitt heldur meira af rjúpu í fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu kemur fram að „til að stuðla að því að veiði fari ekki aftur fram úr veiðiráðgjöf hefur umhverfisráðherra lagt áherslu á það við skotveiðimenn að þeir stundi hófsamar veiðar, en það er ein helsta forsenda þess að rjúpnaveiðar geti haldið áfram með sama hætti á næsta ári. Auk þess verður sölubann áfram í gildi á rjúpu og rjúpnaafurðum og ákveðið svæði á Suðvesturlandi verður áfram friðað fyrir veiði."