Síldarvinnslan fagnar góðri loðnuvertíð

„Segja má að nýliðin loðnuvertíð hafi gengið eins og í sögu. Alls varð afli íslensku skipanna á vertíðinni 70.726 tonn en 18 íslensk skip lönduðu afla og náðu þau öll sínum kvóta.“

Þetta segir í færslu á vefsíðu Síldarvinnslunnar þar sem fagnað er góðri loðnuvertíð í ár.

Á vefsíðunni segir að nánast allur aflinn fór til manneldisvinnslu, loðnan var heilfryst og undir lok vertíðar var öll áhersla lögð á hrognaframleiðslu.

„Beitir NK kom með mestan afla íslenskra skipa að landi, 7.330 tonn og Börkur NK var með þriðja mesta aflann, 6.465 tonn. Tekið skal fram að Beitir og Börkur höfðu samvinnu um veiðarnar. Bjarni Ólafsson AK, skip Runólfs Hallfreðssonar ehf. sem er dótturfélag Síldarvinnslunnar, landaði 2.099 tonnum á vertíðinni,“ segir á vefsíðunni.
 
„Á vertíðinni var landað 20.288 tonnum til vinnslu í Neskaupstað. Þar af lönduðu norsk skip 3.165 tonnum og grænlenska skipið Polar Amaroq landaði 1.169 tonnum.“

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.