„Skiptir okkur miklu máli að stuðla að góðum flugsamgöngum innanlands“
Forstjóri Icelandair segir starfsfólk fyrirtækisins gera allt sem í þess valdi standi til að greiða úr röskunum sem orðið hafa á innanlandsflugi síðustu daga. Viðhald véla hefur dregið úr sveigjanleika í fluginu.Þetta kemur fram í færslu sem Bogi Nils skrifaði í dag í Facebook-hópinn „Dýrt innanlandsflug – þín upplifun.“
Hann segir að Icelandair, sem annast áætlunarflug til Egilsstaða, Akureyrar og Ísafjarðar, hafi síðustu mánuði staðið frammi fyrir miklum áskorunum við að halda uppi ásættanlegri flugáætlun innanlands.
Í upphafi árs hafi veðrið haft áhrif. Síðan tafir á afhendingu flugvéla úr viðhaldsskoðun, vegna aðstæðna í heiminum eftir Covid-faraldurinn. Auk þess hafi óvænt tæknileg vandamál vegið þungt. Þar með hafi sveigjanleiki í flotanum minnkað á sama tíma og eftirspurn eftir innanlandsflugi hafi vaxið hratt.
Bogi Nils, sem uppalinn er á Eskifirði, segir að umræðan um ástandið í fluginu hafi ekki farið framhjá fulltrúum Icelandair og fólk geti treyst því að starfsfólks Icelandair vinni hörðum höndum að því að vinna úr aðstæðum.
Eins og Austurfrétt greindi frá í fyrr í dag er útlit fyrir áframhaldandi seinkanir á flugi næstu daga þar sem ekki verður hægt að greiða úr vandamálum TF-FXA, 76 sæta vélar, fyrr en einhvern tíma í næstu viku.
„Að stuðla að góðum flugsamgöngum innanlands og veita góða þjónustu skiptir okkur miklu máli. Það lítur út fyrir áframhaldandi áskoranir en það er ávallt í forgangi hjá okkur að koma öllum farþegum á sinn áfangastað. Við skiljum ykkar aðstæður og vinnum að því að gera þjónustu í innanlandsflugi betri,“ skrifar Bogi Nils.