Skorað á ráðherra að koma á tvíbreiðri brú yfir Sléttuá

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra að flýta gerð nýrrar tvíbreiðrar brúar yfir Sléttuá á Reyðarfirði. Brúin er umferðarmesta einbreiða brúin á þjóðvegi 1 á Austurlandi.

Í fundargerð frá síðasta fundi bæjarstjórarninnar segir m.a.: „Í kjölfar gerðar Fáskrúðsfjarðargangna átti að fara í endurgerð brúar yfir Sléttuá og vegtengingar frá henni til þéttbýlisins á Reyðarfirði en ekki enn eru þær áætlanir komnar lengra en á teikniborðið frá árinu 2006.

Við slíkt er ekki hægt að una enda er núverandi brú yfir Sléttuá umferðarþyngsta einbreiða brúin á Austurlandi samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar og ekki þarf frekari vitnanna við hvað varðar slysahættu því samhliða“.

Því skorar bæjarstjórn Fjarðabyggðar á stjórnvöld að tryggja nú fjármagn á komandi ári til að hægt verði að ráðast í verkið innan fjárfestingarátaks stjórnvalda sem miðar að því að bæta umferðaröryggi með að fækka einbreiðum brúm á þjóðvegi eitt um landið.“

Ennfremur segir að um leið verði þá framkvæmdum við endurbætur á Suðurfjarðarvegi um Fáskrúðs- og Stöðvarfjörð flýtt í núverandi samgönguáætlun því ekki er minni þörf á endurbótum þess vegar eins og Fjarðabyggð hefur margoft bent á við samgönguyfirvöld og barist fyrir. Ekki síst við einbreiðar brýr sem þar eru í botni fjarðanna og þurfa að komast í forgang.

Bæjarstjórn staðfestir bókun með 9 atkvæðum og felur bæjarritara að koma henni á framfæri.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.