Skúli gefur kost á sér í prófkjöri Pírata
Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri á Hallormsstað, hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Pírata í Norðausturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar í lok september.Í tilkynningu frá Súla segist hann tilbúinn að taka hvaða sæti sem honum verði treyst fyrir í lýðræðislegu prófkjörsferlinu.
Skúli hefur langa reynslu í stjórnmálum, en hann hefur starfað að sveitarstjórnarmálum i yfir 20 ár og var um tíma formaður bæjarráðs á Héraði. Hann hefur tekið þátt í ýmsum félagsstörfum og starfað með Pírötum í nokkur ár.
Hann er menntaður vélstjóri en hefur komið víða við á starfsferlinum, undanfarin ár í skógræktargeiranum sem bæði skógarvörður á Hallormsstað og framkvæmdastjóri Barra.
Skúli segir helstu áherslur sínar vera nýa stjórnarskrá á grunni tillagna Stjórnlagaráðs, opna og gagnsæja stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, eftirfylgni við stefnu hreyfingarinnar í loftslagsmálum og byggðastefna sem í framkvæmd byggist á að styrkja gruninnviði, svo sem samgöngur, orkuflutningsnet og gagnaflutningskerfi um land allt.
Hann telur að Píratar nái árangri á Alþingi með að starfa opið, heiðarlega og helst í ríkisstjórn og hangi ekki í hjólförum gömlu stjórnmálanna heldur finni nýjar leiðir að árangri. Þá segir Skúli það skoðun sína að sé sem kjörinn sé á þing fyrir ákveðinn flokk en segi sig úr honum eigi jafnframt að segja af sér þingmennsku og kalla til varamann.