Spá að vindur nái fellibylsstyrk á Austfjörðum
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvörun sína fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði úr gulu í appelsínugult. Spáð er að vindur í hviðum á Austfjörðum fari yfir 45 m/s sem er fellibylsstyrkur.Á vefsíðu Veðurstofunnar segir að á Austfjörðum er spáð norðvestan 23-30 m/s og vindhviður yfir 45 m/s. Él og mögulega skafrenningur eða kóf. Nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að forðast foktjón, fjúkandi brak getur verið hættulegt. Ekkert ferðaveður.
Viðvörunin tekur gildi kl. 3 í nótt og stendur til kl. 18 á morgun.
Á Austurlandi að Glettingi er spáð norðvestan 20-28 m/s með snjókomu og skafrenningi, stórhríð á köflum. Lélegt skyggni og ekkert ferðaveður.