Sparað hjá SAust: Kjör starfsmanna skerðast
Soffía Lárusdóttir, forstöðumaður svæðisskrifstofu með málefnum fatlaðra á Austurlandi (SAust) segir að einhverjir starfsmenn þurfi að taka á sig kjaraskerðingar til að niðurskurður á ríkisframlögum til stofnunarinnar gangi eftir. Færsla á þjónustu til sveitarfélaga getur skapað hagræðingu. Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar verður skorið niður um tæpar 20 milljónir í framlögum til málefna fatlaðra á Austurlandi. Ríflega 1,5 milljón snýr að Sveitarfélaginu Hornafirði sem hefur verið með samning við félags- og tryggingamálaráðuneytið um þjónustu við fatlaðra.Einnig fellur út 1,4 króna framlag ætlað í framkvæmdir við lóð og aðgengismál við Jónsver, vinnustað fyrir fólk með skerta starfsorku á Vopnafirði.
Eftir standa 16,7 milljónir sem SAust tekur á sig.
„Það liggur fyrir að hluta þessa samdráttar verður mætt með-breytingum á rekstrarformi þjónustunnar sem leiðir til fækkunar á stjórnunarstöðum og um leið launalækkunum hjá einstökum starfsmönnum,“ segir Soffía í samtali við Agl.is.
„Eftirvinnu verður haldið í lámarki, svo sem útköllum vegna veikinda starfsmanna og ferða- og námskeiðskostnaður starfsmanna og ýmiss annar rekstrarkostnaður verður lækkaður.“
Soffía segir mögulegt að með færsla þjónustu frá SAust til sveitarfélaga um áramótin leiði til stjórnsýslulegrar hagræðingar.
„Í samkomulaginu á milli ríkisins og sveitarfélaga um fjárhagsramma tilfærslu þjónustu við fatlaða sem undirritaður var 6. júlí sl. er gert ráð fyrir fjármunum á fjárlögum árið 2011 vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar og vegna breytingakostnaðar, tilfærslu, aðlögunar og útfærslu þjónustunnar þannig að áætlað er að þessir fjármunir komi aftur inn í málaflokkinn.“