Starfslokin voru að frumkvæði Karls Óttars
Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir að starfslok Karls Óttars Péturssonar bæjarstjóra hafi verið að hans eigin frumkvæði.Aðspurður um hvort bæjarstjórn hafi verið ánægð með störf Karls Óttars segir Jón Björn að svo hafi verið eins og fram kemur í tilkynningunni.
Að öðru leyti vísar Jón Björn í tilkynninguna á vefsíðu Fjarðabyggðar um starfslokin. „Það er ekki meira um málið að segja af okkar hálfu,“ segir Jón Björn.