Stöðvarfjörður á topp 10 lista yfir nýgengi smita
Þegar skoðaðar eru tölur um flest tilfelli á nýgengi COVID smita á 100.000 íbúa innanlands síðustu 14 daga er Stöðvarfjörður í 4. sæti á lista yfir 10 staði þar sem smitin eru flest.Á lista sem birtur er á ruv.is kemur fram að nýgengi smita á þennan mælikvarða er 4.762 á Stöðvarfirði. Stöðvarfjörður er jafnframt eina bæjarfélagið á Austurlandi sem er á þessum lista. Landsmeðaltalið mælt á þennan kvarða eru 3.752 smit.
Í efsta sæti listans er Grímsnes- og Grafninghreppur með 14.807 smit. Raunar er sá hreppur og Kjós einu staðirnir þar sem smitin eru yfir 14.000 miðað við tilfelli per 100.000 manns.. Í þriðja sæti er Seltjarnarnes með 6.893 smit.
Í gærdag mældust alls 1.096 smit á landinu, þar af voru 170 smit greind á landamærunum.