Stormur á Djúpavogi en ekkert tjón
Stormur geisar nú á Djúpavogi og í nágrenni bæjarins. Vindmælirinn í Hamarsfirði sýnir 32 metra á sekúndu og í hviðum fer hann hærra.Eiður Ragnarsson íbúi á Djúpavogi segir að ekkert tjón hafi orðið vegna veðursins. „Menn hér voru búnir að undirbúa sig vel og vandlega fyrir þetta veður í gærdag,“ segir Eiður. „Staðan er því alls ekki hættuleg í augnablikinu.“
Fram kemur í máli Eiðs að bæjarbúar séu sallarólegir þrátt fyrir hvassviðrið. „Menn eru ekki að kippa sér upp við þetta og telja ekki að um óveður sé að ræða fyrr en vindmælirinn í Hamarsfirði fýkur á haf út.“
Eiður segir hinsvegar að stærri bílar og bílar með aftanívagna ættu ekki að keyra um svæðið eins og staðan er núna.