Súrálsskipið gæti siglt um eða eftir helgi
Líðan skipverja af súrálsskipinu við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði heldur áfram að þróast í rétta átt. Þeir átján sem enn eru um borð fóru í sýnatöku í gær til að meta sem best stöðuna gagnvart framhaldinu. Niðurstöðu er að vænta með kvöldinu eða í fyrramálið. Gera má ráð fyrir að skipið geti siglt á ný um eða eftir helgi, hlaupi engin snurða á þráðinn.Þetta kemur fram í tilkynnuingu frá aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi. Þar segir einnig að góðar fréttir eru af þeim sem komu með Norrænu fyrir hálfum mánuði og þurftu í einangrun vegna smits. Vonir standa til að þeir verði útskrifaðir innan tíðar.
Ástandið í fjórðungi drekans telst því nokkuð gott þrátt fyrir allt. Öll teljast smitin til landamærasmita en ekki samfélags. Þau fundust í tíma og eru einangruð eins og hægt er. Hætta er því hverfandi á dreifingu þeirra.
"Bjart er því framundan en mikilvægt sem fyrr að láta hvergi skeika að sköpuðu heldur gæta að okkur í hvívetna. Höldum fjarlægð, notum grímu þar sem það á við og munum handþvott og sprittun snertiflata. Þannig brokkum við létt yfir þessa hæð sem við römbuðum að nýverið og stefnum glaðbeitt í átt til sólar hinumegin," segir í tilkynningunni.