Þokkalegur kraftur í kolmunnaveiðunum
Kolmunnaskipin hafa fengið ágætan afla á gráa svæðinu suður af Færeyjum í vikunni. Einn daginn fékk Bjarni Ólafsson AK 550 tonn eftir að hafa togað í 15 tíma, Beitir NK fékk 450 tonn eftir 16 tíma og Börkur NK 400 tonn eftir 12 tíma. Það er ljóst að kolmunnaveiðin er hafin og þokkalegur kraftur í henni.Þetta kemur fram á vefsíðu Síldarvinnslunnar. Þar segir að þeir Runólfur Runólfsson skipstjóri og Þorkell Pétursson stýrimaður á Bjarna Ólafssyni sögðu að útlitið væri gott á miðunum en þá var áhöfnin að dæla um 650 tonna holi sem fékkst eftir að dregið hafði verið í 15 tíma.
„Þetta er hol númer tvö og þetta byrjar bara vel. Við erum svolítið austarlega að veiða og það er áhyggjuefni því fiskurinn gæti þá verið að ganga inn í skoska lögsögu. Við viljum að hann gangi vestar. Annars hafa skipin verið að fá gott hérna, Polar Amaroq var til dæmis að dæla 400 tonnum núna,“ segir Runólfur í samtali á vefsíðunni.
Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki segir einnig að veiðin fari vel af stað. „Við erum að dæla núna eftir að hafa togað í um 18 tíma. Ég gæti trúað að það væru um 500 tonn í hjá okkur en það kemur betur í ljós þegar dælingu er lokið. Það er að byrja að ganga fiskur hérna inn á gráa svæðið og vonandi á þetta eftir að verða mjög gott,“ segir Hjörvar.
Tómas Kárason skipstjóri á Beiti upplýsir að það eigi að fara að hífa og hann teldi að væri gott í. „Menn eru bara brattir. Veiðin byrjaði í gær og þetta lítur býsna vel út. Það var talsvert að sjá í nótt og í morgun og ég held að holið núna sé fínt. Ég held að menn geti bara verið bjartsýnir á góða veiði,“ segir Tómas.
Mynd: Hugi Freyr Ólason/SVN