Þrautreyndur þjófur dæmdur í 18 mánaða fangelsi
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi nýverið pólskan karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg innbrot hérlendis, meðal annars á Austfjörðum. Rétt þótt að hneppa manninn í fangelsi í ljósi langs brotaferils víða um Evrópu.Karlmaðurinn var handsamaður eystra í lok júní. Hann hafði þá hundsað stöðvunarskyldu lögreglu við bæ í Breiðdal en ók bifreið sinni framhjá og þvert yfir veginn þannig að hún hafnaði utan vegar.
Það umferðarlagabrot er eitt af finn brotum sem talin eru upp í ákæru en maðurinn er dæmdur fyrir að hafa farið inn í fjögur ólæst hús og stolið þaðan peningum, skartgripum og lausafé. Í eitt skiptið hafði hann ekkert upp úr krafsinu en réðist hins vegar á húsráðanda á Fáskrúðsfirði. Hann játaði brot sín skýlaust fyrir dómi.
Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi á síðustu tíu árum tólf sinnum verið gerð refsing í Evrópu. Listinn er nokkuð fjölbreyttur: þjófnaður í Noregi, innflutningur fíkniefna, þjófnaður og eignaspjöll í Þýskalandi, þjófnaður og umferðarlagabrot í Austurríki, þjófnaður í Danmörku, þjófnaður í Lúxemborg auk brottvísunar úr landi og þjófnaður í Svíþjóð.
Á síðasta ári fékk maðurinn refsingar í þremur löndum: Svíþjóð, Þýskalandi og Póllandi.
Í ljósi langs sakaferils taldi dómari ekki rétt að skilorðsbinda 18 mánaða refsidóm. Tveggja vikna gæsluvarðhald dregst þar þó frá. Þá var manninum gert að greiða rúma milljón í sakarkostnað.