Þröstur: Lítum á þetta sem varnarsigur
Þröstur Jónsson oddviti Miðflokksins í nýju sameinuðu sveitarfélagi á Austurlandi segir að hann líti á niðurstöður kosninganna um síðustu helgi sem ákveðinn varnarsigur.„Það má segja að við höfum goldið fyrir það hve kjörsóknin var léleg á Héraði,“ segir Þröstur. „Þar höfðum við boðið okkur fram áður og höfðum grunn til að byggja á.“
Ennfremur segir Þröstur að flokkurinn hafi ekki áður boðið fram niður á fjörðum og því sótt fylgi sitt að mestu á Héraði.
„Í ljósi þess tel ég að úrslit kosninganna séu ákveðinn varnar- eða áfangasigur fyrir okkur,“ segir hann.