Tilboði tekið í Eiða

Landsbankinn hefur tekið tilboði í eignir sem hafa verið til sölu á Eiðum.

Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi bankans í svari við fyrirspurn Austurfréttar en bætir við að ekki hafi verið gengið frá kaupsamningi. Búið er að taka eignina af söluskrá.

Bankinn tók tilboði fyrr í vor en það var gert með fyrirvörum um fjármögnun. Það gekk síðan til baka.

Bankinn eignaðist Eiða fyrir tæpum tveimur árum og setti jörðina og fasteignir þar fljótlega á sölu. Jörðin er 768 hektarar að stærð og byggingar á henni 4707 fermetrar. Eru þar aðallega byggingar sem áður tilheyrðu Alþýðuskólanum á Eiðum svo sem íþróttahús, heimavistarhús, íbúðahús, kennslustofur og salir.

Ekkert verð var sett á eignirnar. Fasteignamat var 287 milljónir en brunabótamat 1,18 milljarðar.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.