Tíu sinnum sektað fyrir sóttvarnabrot eystra
Tíu sektir hafa verið gefnar út í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi undanfarið ár vegna brota á sóttvarnareglum.Þetta kemur fram í tölum sem Austurfrétt óskaði eftir frá embætti ríkislögreglustjóra. Þær eru fyrir tímabilið frá mars 2020 til 20. apríl 2021.
Alls höfðu 94 mál farið í sektarmeðferð, 88 til einstaklinga en 6 hjá fyrirtækjum. Á Austurlandi hafa alls tíu brot farið í slíkt ferli, níu hjá einstaklingum og eitt hjá fyrirtæki.
Flestar sektir hafa verið gefnar út af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 22, 19 á Norðurlandi eystra, 18 á Suðurlandi, 11 á Suðurnesjum, 5 á Norðurlandi vestra, 4 á Vesturlandi, 3 á Vestfjörðum og 2 í Vestmannaeyjum.
Með sektarmeðferð er átt við að lögregla hafi ákveðið að sekta fyrir brot en misjafnt er á hvaða stigi málið er, hvort sekt hafi verið gefin út formlega, borist viðtakenda eða hún verið greidd.
Þessu til viðbótar hefur ekki verið ákveðið endanlega hvort sektað verði fyrir brot á fjöldatakmörkunum á árshátíð Verkmenntaskóla Austurlands um síðustu helgi.