Orkumálinn 2024

Um 1100 bólusettir á Austurlandi í vikunni

Norræna kom í gærmorgun til Seyðisfjarðar með 55 farþega innanborðs. Fimmtíu og einn þeirra fór í sýnatöku en fjórir hugðust halda áfram með skipinu og fóru því ekki í land. Tuttugu og tveir farþeganna fengu gistingu á sóttvarnarhótelinu í Hallormsstað. Aðrir ljúka sóttkví sinni annarsstaðar þar sem yfirvöld heimila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Austurlandi.  Þar segir að gert sé ráð fyrir að um ellefu hundruð íbúar Austurlands verði bólusettir í þessari viku. Eru þá ríflega fjögur þúsund ýmist full bólusettir eða þeir hafið bólusetningu. Það er rétt um fjörutíu prósent íbúa.

"Skipulagning og umsjón þessa verkefnis hefur hvílt á starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Austurlands, HSA. Um gríðarstórt verkefni er að ræða og viðamikið. Það hefur gengið vel og þykir ástæða til að hrósa HSA fyrir þeirra þátt og ekki síður íbúum, en velvild þeirra, þolinmæði, þrautseigja og sveigjanleiki hefur átt stóran þátt í snurðulausum gangi þess," segir í tilkynningunni.

"Að endingu vekur aðgerðastjórn athygli á að ferðamönnum fer nú fjölgandi á landinu með auknum fjölda flugfarþega sér í lagi. Í því felast tækifæri en einnig áskoranir þegar litið er til sóttvarna. Gætum því að okkur sem fyrr og stuðlum þannig að ánægjulegu sumri.

Gerum þetta saman."

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.