Um 15% smita tekst ekki að rekja
Ekki hefur enn tekist að rekja uppruna Covid-19 smits sem greindist á Austurlandi á þriðjudag. Ekki tekst alltaf að rekja uppruna allra smita.Þetta var meðal þess sem framkom á upplýsingafundi almannavarna í morgun þar sem spurt var út í hvernig gengi að rekja smitið.
„Samkvæmt mínum upplýsingum hefur ekki tekist að rekja það fyllilega, enda er það svo að 15% smita tekst ekki að rekja. Mögulega er þetta eitt þeirra.
Fólk með lítil einkenni getur dreift verunni og kannski er þetta slíkt tilfelli,“ svaraði Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir.
Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarnanefndar Austurlands í morgun kom fram að ekki væri búið að finna uppruna smitsins. Vonir stæðu þó til þess að búið væri að ná utan um og hindra frekari útbreiðslu þess. Tæplega 40 manns eru í sóttkví í fjórðungnum vegna þess.