Varað við hríð og stormi austanlands
Gul veðurviðvörun tekur gildi á morgun á Austurlandi að glettingi og Austfjörðum. Spáð er norðvestan hríð og stormi á AustfjörðumÞetta kemur fram á vefsíðu Veðurstofunnar. Þar segir að viðvörunin gildi frá klukkan 9 á morgun og fram til miðnættis á Austurlandi að Glettingi. Þar er spáð Norðvestan 15-23 m/s og éljagangi eða skafrenningi með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum.
Á Austfjörðum tekur aðvörunin gildi kl. 11 og stendur til miðnættis. Þar er spáð Norðvestan 18-25 m/s og mjög snörpum vindhviðum við fjöll, hvassast sunnantil. Einnig má búast við éljagangi og skafrenningi með lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum.