Veginum við Kárahnjúka aftur lokað á morgun
Næsta lokun á veginum undir Kárahnjúkum verður á morgun, fimmtudaginn 22. júlí. Stendur lokunin frá kl. 9 um morguninn og til kl. 18 síðdegis.Eins og fram hefur komið í fréttum stendur Landsvirkjun fyrir framkvæmdum í Fremri-Kárahnjúk og er stefnt á að þeim verði að fullu lokið mánudaginn 16. ágúst.Tilgangur framkvæmdanna er að koma í veg fyrir grjóthrun í Fremri-Kárahnjúk. Á verktímanum mun verða nauðsynlegt að loka veginum undir Kárahnjúknum suma daga, til að tryggja öryggi vegfarenda.
„Veginum verður lokað beggja vegna annars vegar við inntaksmannvirkið á milli Kárahnjúkastíflu og Desjarárstíflu og hins vegar við norðurenda Kárahnjúkastíflu. Mönnuð vakt verður á þessum stöðum á meðan lokanir verða. Lokanirnar geta orðið nokkrar klukkustundir í senn en einnig er hugsanlegt að einhverja daga þurfi að loka daglangt,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.
„Reynt verður að stilla lokunum í hóf en öryggi starfsmanna og vegfarenda verður haft í forgangi.“