Veginum við Kárahnjúka lokað í tvo daga
Vegna framkvæmda á vegum Landsvirkjunar í Fremri-Kárahnjúk þarf að loka veginum fimmtudaginn 29. júlí milli kl. 10:00 og 20:00 og einnig á föstudaginn 30. júlí milli kl. 08:00 og 18:00.Eins og fram hefur komið í fréttum má búast við lokunum sem þessum á næstu vikum eða fram til 16. ágúst. .
Tilgangur framkvæmdanna er að koma í veg fyrir grjóthrun í Fremri-Kárahnjúk. Á verktímanum mun verða nauðsynlegt að loka veginum undir Kárahnjúknum suma daga, til að tryggja öryggi vegfarenda.
Veginum verður lokað beggja vegna annars vegar við inntaksmannvirkið á milli Kárahnjúkastíflu og Desjarárstíflu og hins vegar við norðurenda Kárahnjúkastíflu.