Vegurinn um Oddsskarð opnaður á föstudag

Vegagerðin hefur í samráði við sérfræðinga á þeirra vegum ákveðið að hægt sé að opna Oddsskarðsveg fyrir umferð á nýjan leik fyrir létta umferð með ákveðnum takmörkunum á föstudag..

Þetta kemur fram á vefsíðu Fjarðabyggðar. Þar segir að gert er ráð fyrir að hámarkshraði verði 50 km og merktar verða þungatakmarkanir á veginum. Auk þess verður opnað fyrir einstaka ferðir snjómoksturstækja. Vinna við snjómokstur á veginum mun hefjast fljótlega, og stefnt er að því að skíðasvæðið í Oddsskarði muni opna föstudaginn 15. janúar frá kl. 16 - 20.

Frá því um miðjan desember hefur vel verið fylgst með stöðu mála við Oddsskarðsveg ofan Eskifjarðar, vegna jarðsigs sem myndaðist í veginum í miklum rigningum. Vegurinn hefur verið lokaður frá því 18. desember, en nú hefur verið ákveðið í samráði við Vegagerðina og Veðurstofuna að opna hann að nýju enda hafa litlar sem engar hreyfingar mælst á svæðinu frá því 19. desember.

Áfram mun verða fylgst vel með svæðinu, og þar þarf að gera frekari athuganir og mælingar til að komast til botns í því hverskonar hreyfing er að eiga sér stað. Ljóst er að endurskoða þarf fyrirliggjandi hættumat fyrir Eskifjörð, en sú vinna gæti tekið talsverðan tíma, enda þurfa viðamiklar rannsóknir og skoðanir þá að liggja fyrir.

Viðræður munu fara fram á næstunni milli Fjarðabyggðar, Veðurstofunnar, Vegagerðarinnar og fleiri stofnana um hvort  verði hafist handa við gerð á bráðabirgðarhættumati fyrir svæðið, þannig að það geti legið fyrir í sumar, að því er segir á vefsíðunni.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.