Vetrarhvellurinn skellur líka á Austurland
Vetrarhvellurinn sem ríður yfir landið í dag mun einnig skella á Austurland. Veðurstofan hefur gefið út gula veðurviðvörun fyrir Austurland að Glettingi og Austfirði,Á Austurlandi að Glettingi gildir viðvörunin frá kl. 21 í kvöld og fram til kl. 03 í nótt. Þar er reiknað með suðvestan 18-25 m/s og vindhviður yfir 35 m/s. Varasamt ferðaveður.
Á Austfjörðum gildir viðvörunin frá kl. 22 í kvöld og þar til kl. 05 í nótt. Þar er gert ráð fyrirsuðvestan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 40 m/s, hvassast syðst. Varasamt ferðaveður.