Viðbúið að áfram verði raskanir næstu daga
Viðbúið er að áfram verði seinkanir á áætlunarflugi Icelandair innanlands. Önnur af stærri vélum félagsins getur ekki flogið vegna tæknilegra vandamála. Félagið heitir úrbótum á upplýsingagjöf til farþega næstu daga.Eins og Austurfrétt hefur greint frá hafa gríðarlegar tafir orðið á innanlandsflugi síðustu vikuna vegna bilana í þeim vélum Icelandair sem sinna innanlandsfluginu auk Grænlands. Þær eru fimm talsins, annars vegar þrjár Bombardier Q200 sem taka 38 farþega, hins vegar tvær Q400 sem taka 76 farþega hvor.
Í gærmorgunn voru báðar stóru vélarnar í vandræðum en önnur þeirra, TF-FXI, komst í gagnið eftir hádegi í gær. Hún reynir að sinna áætlun fyrir þær báðar meðan TF-FXA er kyrrsett vegna tæknilegra vandamála.
Þær upplýsingar fengust hjá Icelandair í morgun að von væri á henni inn í loftið í næstu viku en ekki liggur nákvæmlega fyrir hvenær. Þar til má búast við töfum á flugum.
Tvær af fimm til taks í gær
Ein minni vélanna þriggja hefur síðustu þrjár vikurnar verið erlendis vegna reglubundins viðhalds. Það hefur tafist. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir ástæður tafanna meðal annars vera brestir í aðfangakeðjum á heimsvísu í kjölfar Covid-faraldursins. Nú er reiknað með henni í flug á ný um miðjan júlí.
Að auki hefur önnur af minni vélunum ekki flogið síðustu tvo daga en á nú að vera tilbúin í loftið á ný. Þetta þýddi að í gær og í morgun voru aðeins tvær af fimm innanlandsvélum Icelandair til taks. „Þegar allar verðar komnar skapast bæði stöðugleiki í áætlunum og sveigjanleiki til að bregðast við ef eitthvað kemur upp á,“ segir Ásdís Ýr.
Bæta upplýsingagjöf
Hún segir Icelandair kappkost að koma öllum farþegum á sín áfangastaði að innan sama dags þótt það verði seinkunnir og forðast í lengstu lög að aflýsa flugum. „Við skiljum að fólk treysti á ákveðna flugtíma en ég get fullvissað fólk um að okkar starfsfólk vinnur hörðum höndum að því að láta þetta allt ganga, á sama tíma og það tekst við erfiðar og ófyrirséðar aðstæður.“
Ofan í seinkanirnar hefur flugfélagið sætt gagnrýni fyrir stopula upplýsingagjöf. Farþegar hafa til dæmis gagnrýnt að hafa fengið misvísandi skilaboð um flug sín og í verstu tilfellunum hafa boð borist svo seint að farþegar hafa misst af flugi.
„Við hlustum og fylgjumst með því viðskiptavinir okkar hafa að segja og erum að vinna í að bæta hana. Við leggjum okkur fram um góða upplýsingagjöf,“ segir Ásdís Ýr.
Aðspurð kvaðst hún ekki geta gefið nánari upplýsingar um fyrirkomulag flugsins næstu daga. Í morgun var TF-FXI fyrst send til Akureyrar samkvæmt áætlun en síðan ætlað að fljúga austur miðað við seinkunn. Eins var í gær fengin Boeing-þota frá félaginu til að koma öllum á áfangastað. „Það verður að minnsta kosti ekki þota í dag. Framhaldið verður síðan að koma í ljós,“ svaraði Ásdís er hún var innt eftir því hvort þoturnar yrðu notaðar til að létta undir með millilandafluginu.