Veðurviðvörun lækkar í gult fyrir hádegi á Austurlandi
Því er spáð að veðrið sem nú geisar á Austurlandi og Austfjörðum muni ganga niður síðdegis í dag. Veðurviðvörun mun lækka úr appelsínugulu og í gult á Austurlandi að Glettingi fyrir hádegi, að því er segir á vefsíðu Veðurstofunnar.Sem stendur er slydda eða snjókoma til fjalla á Austurlandi og hætta á að færð á fjallvegum spillist. Þar er nú allhvöss eða hvöss norðvestlæg átt og rigning á láglendi.
Á Austfjörðum er hvassari vindur og geta vindhviður þar sunnan til náð allt að 30-35 m/s sem er á við fyrsta stigs fellibyl. Því eru ökumenn með aftanívagna varaðir við að vera á ferðinni á þeim slóðum.
Uppfært kl. 9.15: Búið er að lækka veðurviðvörun fyrir Austurland niður í gult.