Vilja að Múlaþing beiti sér fyrir lokun á Skápnum
Heimastjórn Borgarfjarðar fer þess á leit við sveitarstjórn Múlaþings að unnið verði að lokun svokallaðs Skáps fyrir togveiðum. Á þessu svæði geta togarar veitt alveg upp að 6 mílna mörkum fyrir utan þorpið. Togveiðar þarna séu ógn við kjarnastarfsemi brothættrar byggðar.Í bókun um málið í heimastjórn Borgarfjarðar eystri segir m.a. að samkvæmt lögum um fiskveiðilandhelgi Íslands mega togarar almennt veiða á miðum 12 sjómílur frá landi. Á nokkrum stöðum á landinu mega þeir koma nær og er það tilfellið á Borgarfjarðarmiðum. Þar mega togarar veiða allt að 6 sjómílur frá landi og er umrætt svæði nefnt í daglegu tali „Skápur“.
Síðan segir: „Þetta hefur haft í för með sér að á hverju hausti koma togarar og veiða á heimamiðum Borgfirðinga með þeim afleiðingum að heimasmábátar þurfa róa allt að 40 sjómílur til að eiga von á afla. Þetta er eina slíka svæðið á landinu sem er svo nálægt sjávarþorpi. Þetta ástand er ógn við kjarnaatvinnugrein brothættrar byggðar.“
Mynd: Borgarfjörðureystri.is