„Ýmislegt á ferðinni í bænum“
Björgunarsveitin Gerpir í Neskaupstað hefur sinnt ýmsum verkefnum í morgun enda aftakaveður í bænum. Rafmagnslaust hefur verið í sunnanverðum Fáskrúðsfirði frá því klukkan átta í morgun.„Við höfum verið á ferðinni með 10-15 manns síðan um klukkan átta í morgun. Það er ýmislegt á ferðinni enda snarvitlaust veður í bænum,“ segir Sveinn Halldór Oddsson Zoega í svæðisstjórn björgunarsveitanna á Austurlandi en hann býr í Neskaupstað.
Hann segir garðkofa, ruslatunnur og ýmsa lausamuni vera meðal þess sem fokið hafi auk þess sem rúða hafi brotnað í Nesskóla. Eins mun jólatré Fjarðabyggðar hafa fokið á hliðina. Á Seyðisfirði barst útkall vegna brotinnar rúðu í íbúðarhúsi. Björgunarsveitarfólk og viðbragðsaðilar reyna að festa það sem virðist vera að losna.
„Hér gengur stórsjór langt upp á land,“ segir hann um aðstæður. Hann bætir við að í Neskaupstað sé mjög byljótt, um 20 metra meðalvindhraði sem tvöfaldist svo skyndilega í hviðum. Slíkar aðstæður skapi mun meira álag á mannvirki heldur en jafn stormur.
Rafmagnslaust varð í Breiðdal í skamman tíman um klukkan hálfa átta í morgun vegna bilunar milli Breiðdals og Teigarhorns. Breiðdalur fær nú rafmagn frá Stöðvarfirði í staðinn.
Í sunnanverðum Fáskrúðsfirði hefur verið rafmagnslaust frá því um klukkan átta í morgun. Bilunin hefur ekki fundist þannig að til stendur að slá línunni inn nú á ellefta tímanum. Þá kemur frekar í ljós hvernig ástandið er. Upplýsingar um stöðuna verða uppfærðar á www.rarik.is/tilkynningar
Truflanir frá Prestbakkalínu höfðu áhrif á Hornafirði í nótt, meðal annars á hitaveituna á Höfn. Hún á nú að vera komin í jafnvægi.
Samkvæmt tölum Veðurstofunnar mældist mesti vindhraði á landinu í dag 40,1 m/s í hviðu á Vatnsskarði eystra. Mælir Veðurstofunnar þar sýnir 50 m/s hviðu klukkan 10:30. Appelsínugul viðvörun er í gildi fyrir Austurland og Austfirði til klukkan 18:00 í kvöld.
Upp úr því tekur aðeins að lægja, heldur fyrr inn til landsins, en ró virðist ekki komast á fyrr en um miðnætti. Vegurinn yfir Vatnsskarð er ófær og lokað yfir Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði og Öxi.
Mynd úr safni.