Fiðrildin hætta starfsemi – Styrkja fimleikadeild Hattar um rúma milljón
Í gær lauk 40 ára sögu þjóðdansafélagsins Fiðrildanna á Fljótsdalshéraði með formlegum hætti á Gistihúsinu á Egilsstöðum. Eignum félagsins var ráðstafað til góðra málefna og starfseminni slitið, en lítil starfsemi hefur verið í félaginu undanfarin ár. Fiðrildin ákváðu að gefa leikskólum á Fljótsdalshéraði vönduð hljómflutningstæki og þá fékk fimleikadeild Hattar ríflega 1,1 milljón króna til tækjakaupa.Vill bæjarstjórn Fjarðabyggðar að Seyðisfjörður verði endastöð til framtíðar?
Forsvarsmenn bæjarráða Fjarðabyggðar og Seyðisfjarðarkaupstaðar eru ósammála um heppilegustu gangatenginguna fyrir Seyðisfjörð. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsti í fréttum RÚV þeirri skoðun að betra væri að byrja á göngum frá Seyðisfirði til Norðfjarðar í gegnum Mjóafjörð með tengingu upp á Fagradal, svokölluðum T-göngum, en formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar segir þau hvorki tryggja betri né tryggari vetrarsamgöngur.Eiður Ragnars hættir í bæjarstjórn Fjarðabyggðar
Eiður Ragnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur sagt sig úr bæjarstjórninni. Ástæðan er að hann er að flytja aftur á æskustöðvarnar í Djúpavogshreppi.LungA sett í fimmtánda sinn: Kærleiksrík athöfn
LungA-hátíðin á Seyðisfirði var sett í fimmtánda sinn í gærkvöldi í félagsheimilinu Herðubreið. Fjölþjóðlegur listahópur flutti þar gjörning þar sem unnið var út frá hugtakinu samkennd.Mjög jákvæð teikn um möguleika á millilandaflugi
Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir „mjög jákvæð teikn á lofti" í viðræðum við stóran breskan ferðaþjónustuaðila um beint flug á milli Egilsstaða og Englands á næsta ári. Næsta viðræðulota verður í ágúst.Eistnaflug: Börn leyfð til klukkan tíu – Skipuleggjandi segir hátíðum mismunað
Tónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupsstað sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þess efnis að lögreglustjórinn á Austurlandi hefði ákveðið að börn mættu ekki koma inn í tónleikasalinn á Eistnaflugi. Það er rangt, samkvæmt lögreglunni á Eskifirði. Börn megi vera á tónleikum til klukkan tíu. Skipuleggjandi Eistnaflugs segir tónlistarhátíðum mismunað hvað þetta varðar og nauðsynlegt sé að yfirvöld dragi skýra línu.