Flúor í grasi í Reyðarfirði fer minnkandi þriðja árið í röð, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Alcoa Fjarðaáli. Þar segir að flúorinn hafi verið 36 prósentum minni nú heldur en sumarið 2014, en það sumar hafi einnig dregið úr flúor miðað við sumarið 2013. Meðaltal nýliðins sumars var 19,7 µg samanborið við 30,8 µg árið 2014 og 37,8 µg sumarið 2013.
Svissneski maðurinn sem lést í sunnanverðum Seyðisfirði í síðustu viku hét Pascal René Danz Lunn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í dag.
Sveitarstjórnir Fljótsdalshéraðs og Fljótsdalshrepps hafa samþykkt að selja húsnæði Hallormsstaðaskóla. Kaupandi er 701 hotels ehf., en það félag á og rekur meðal annars Hótel Hallormsstað, Hótel Valaskjálf og veitingastaðinn Salt á Egilsstöðum.
Klukkan 10:00 í morgun var gegnumslag í Norðfjarðargöngum. Aðeins 7 metrar voru eftir ósprengdir, en hver sprengifæra er 5 metrar. „Það var viðbúið að það myndi eitthvað gat opnast. Þegar það eru bara tveir metrar eftir þá getur þetta látið undan og við bjuggumst við að það yrði hugsanlega gat,“ segir Guðmundur Þór Björnsson, umsjónarmaður framkvæmdanna frá verkfræðistofunni Hnit.
Þann 7. september síðastliðinn var verksamningur um dýpkun Vopnafjarðarhafnar undirritaður. Hagtak hf. tók að sér verkið, en samningsupphæðin er 157.250.000 kr. með vsk. Gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist um næstu mánaðamót og er áætlaður verktími fjórir mánuðir.
Engar umsóknir bárust um 40% stöðu hjúkrunarfræðings eða sjúkraliða á Borgarfirði eystri áður en umsóknarfresturinn rann út fyrir viku síðan. Því er ekki útlit fyrir að neinn ríkisstarfsmaður verði starfandi á Borgarfirði eystri frá næstu mánaðamótum. Þetta kom fram á vef RÚV fyrr í dag.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar áréttaði á fundi sínum í gær fyrri stefnu sveitarfélagsins, um að það væri tilbúið til að taka á móti flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld.
Melarétt í Fljótsdal hefur verið frestað um einn dag og réttað verður á sunnudag í stað laugardags, vegna tafa við smalamennsku. Þoka í Rananum hefur verið til vandræða fyrir smalamenn að sögn Þorvarðs Ingimarssonar, smalastjóra.
Að öllu óbreyttu verður Fagradalsvegur í Breiðdal tekinn af vegaskrá um næstkomandi áramót. Breiðdalshreppur óskaði eftir því við Vegagerðina fyrr í sumar að niðurfellingu vegarins af vegaskrá yrði frestað frá og með 1. janúar næstkomandi, en varð ekki að ósk sinni.
Óhætt er að fullyrða að óvíða á landinu er matjurtarækt stunduð í minna mæli en á Austurlandi, enda vantar mikið upp á að slík ræktun í landsfjórðungnum komist nálægt því að uppfylla vaxandi neysluþörf heima fyrir, þó svo að góðar aðstæður til slíkrar framleiðslu séu hér víða fyrir hendi.