Mjög jákvæð teikn um möguleika á millilandaflugi
Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir „mjög jákvæð teikn á lofti" í viðræðum við stóran breskan ferðaþjónustuaðila um beint flug á milli Egilsstaða og Englands á næsta ári. Næsta viðræðulota verður í ágúst.Eistnaflug: Börn leyfð til klukkan tíu – Skipuleggjandi segir hátíðum mismunað
Tónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupsstað sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þess efnis að lögreglustjórinn á Austurlandi hefði ákveðið að börn mættu ekki koma inn í tónleikasalinn á Eistnaflugi. Það er rangt, samkvæmt lögreglunni á Eskifirði. Börn megi vera á tónleikum til klukkan tíu. Skipuleggjandi Eistnaflugs segir tónlistarhátíðum mismunað hvað þetta varðar og nauðsynlegt sé að yfirvöld dragi skýra línu.
Óttar Guðmundsson: Þarf að fá stráka til að tala ef þeim líður illa
Smávægileg atvik geta oft verið kveikjan að því að ungir karlmenn láti verða af því að fremja sjálfsvíg en um leið endapunkturinn á löngu ferli. Geðlæknir segir að opna þurfi umræðuna til að gera þeim gert að tala um líðan sína.Guðmundur Bjarnason látinn
Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað á laugardagsmorgun.Eistnaflug: Þjónustugjaldið stendur bara undir hluta kostnaðar sveitarfélagsins
Kurr hefur verið meðal tónleikagesta á Eistnaflugi með þjónustugjald sem bætist við miðaverð á hátíðina. Sveitarfélagið Fjarðabyggð ber umtalsverðan kostnað af hátíðarhaldinu.Unnið dag og nótt á Egilsstaðanesi
Verið er að endurnýja stofnlögn hitaveitunnar á milli Egilsstaða og Fellabæjar. Unnið hefur verið dag og nótt að verkinu undanfarið og allt gengið samkvæmt áætlun, samkvæmt Guðmundi Davíðssyni, framkvæmdastjóra Hitaveitu Egilsstaða og Fella.Vilhjálmur G. Pálsson: Sárt að missa stóru sjóðina
Allt stefnir í að innan tíðar verði Sparisjóður Austurlands, sem þar til í apríl var kenndur við Norðfjörð, einn af fjórum sparisjóðum sem eftir eru í landinu en þrír stórir sjóðir hafa horfið undir bankana nýverið. Vilhjálmur G. Pálsson, sparisjóðsstjóri, er jafnframt nýr formaður Sambands íslenskra sparisjóða (SÍSP)Fiðrildin hætta starfsemi – Styrkja fimleikadeild Hattar um rúma milljón
Í gær lauk 40 ára sögu þjóðdansafélagsins Fiðrildanna á Fljótsdalshéraði með formlegum hætti á Gistihúsinu á Egilsstöðum. Eignum félagsins var ráðstafað til góðra málefna og starfseminni slitið, en lítil starfsemi hefur verið í félaginu undanfarin ár. Fiðrildin ákváðu að gefa leikskólum á Fljótsdalshéraði vönduð hljómflutningstæki og þá fékk fimleikadeild Hattar ríflega 1,1 milljón króna til tækjakaupa.Vill bæjarstjórn Fjarðabyggðar að Seyðisfjörður verði endastöð til framtíðar?
Forsvarsmenn bæjarráða Fjarðabyggðar og Seyðisfjarðarkaupstaðar eru ósammála um heppilegustu gangatenginguna fyrir Seyðisfjörð. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsti í fréttum RÚV þeirri skoðun að betra væri að byrja á göngum frá Seyðisfirði til Norðfjarðar í gegnum Mjóafjörð með tengingu upp á Fagradal, svokölluðum T-göngum, en formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar segir þau hvorki tryggja betri né tryggari vetrarsamgöngur.Eiður Ragnars hættir í bæjarstjórn Fjarðabyggðar
Eiður Ragnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur sagt sig úr bæjarstjórninni. Ástæðan er að hann er að flytja aftur á æskustöðvarnar í Djúpavogshreppi.Af hverju eru Egilsstaðir og Fellabær ekki á Facebook?
Spurning fyrirsagnarinnar hefur kvalið margan manninn á Fljótsdalshéraði um árabil, en fyrir þá sem ekki vita þá er staðreyndin sú að á samskiptamiðlinum Facebook er hvorki hægt að velja Egilsstaði né Fellabæ sem heimabæ sinn.