Heilbrigðisnefnd Austurlands vill ekki heimila byggingu hesthúss á grannsvæði vatnsveitunnar á Eskifirði. Vatnsveitan þykir viðkvæm en þar hefur komið upp mengun í leysingum auk þess sem aðallindirnar geta þornað upp.
Hluthafafundur Búsældar ehf., sem hefst í Valaskjálf á Egilsstöðum klukkan eitt í dag, tekur afstöðu til kauptilboðs Kjarnafæðis á öllum hlutabréfum Búsældar í Norðlenska matborðinu ehf. sem stendur að baki kjötiðnaðarfyrirtækinu Norðlenska. Um 520 bændur frá Eyjafirði suður að Kirkjubæjarklaustri eru hluthafar í búsæld.
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fjarðabyggðar, valdi Nattúrustofu Vestfjarða sem einn af fjórum bjóðendum í lokuðu útboði um umhverfismat vegna ofanflóðavarna á Norðfirði. Það skapar tortryggni um að ójafnræði ríki á meðal bjóðenda, að mati Samtaka iðnaðarins.
Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt fimm milljóna króna fjárveitingu til að flytja borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) frá Akureyri til Breiðdalsvíkur. Verkefnastjóri segir það lyftistöng fyrir byggðarlagið að fá safnið.
Yfirgnæfandi meirihluti hluthafa í Búsæld, móðurfélagi kjötiðnaðarfyrirtækisins Norðlenska, hafnaði í dag kauptilboði frá Kjarnafæði á hluthafafundi sem haldinn var á Egilsstöðum.
Vorúthlutun samfélagsstyrkja úr styrktarsjóði Alcoa Fjarðaáls fór fram í Sláturhúsinu á Egilsstöðum föstudaginn 11. júní. Veittir voru 34 styrkir til fjölbreyttra verkefna á Austurlandi fyrir um 8 milljónir samtals.
Bæjarráð Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi sínum fyrr í vikunni að húsnæði Hallormsstaðarskóla verði auglýst til sölu. Að sögn formanns bæjarráðs Fljótsdalshéraðs voru viðræður við Skógrækt Ríkisins um að hefja starfsemi í húsnæðinu, en ekkert kom út úr þeim.
Minni hluthafar í Búsæld, móðurfélagi kjötiðnaðarfélagsins Norðlenska, virðast tregir til að selja Kjarnafæði hlut sinn í félaginu. Átök hafa staðið um framtíð félagsins undanfarin misseri.
Kaup Síldarvinnslunnar á útgerðarfélaginu Berg-Huginn í Vestmannaeyjum eru að fullu staðfest tæpum þremur árum eftir að samið var um þau í kjölfar þess að Hæstiréttur snéri við dómi héraðsdóms sem taldi Vestmanneyjabæ eiga forkaupsrétt að félaginu. Hæstiréttur taldi kaupin snúast um hlutabréf en ekki fiskiskip.
Í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs var á dögunum samþykkt að ganga til samninga við hugbúnaðarfyrirtækið Stefnu um gerð nýrrar heimasíðu fyrir Fljótsdalshérað. Þó var ekki einhugur um málið innan bæjarstjórnar og þrír fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði á móti.
Möguleiki er að millilandaflug hefjist um Egilsstaðaflugvöll á næsta ári. Viðræður hafa staðið síðustu mánuði við mögulegan samstarfsaðila erlendis frá. Nú er unnið að því að tryggja að innviðir séu til taks ef af fluginu verður.