Snjóflóðin áminning um að hraða verði vinnu við varnarmannvirki
Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir ánægjulegt að sjá hversu vel snjóflóðavarnamannvirki hafi reynst þegar tvö stór snjóflóð féllu á Flateyri í gærkvöldi. Á sama tíma séu þau áminning um að ekki verið haldið aftur af fjármagni úr Ofanflóðasjóði og sem fyrst lokið við að verja hættusvæði um allt land.Þjóðgarðsfundi frestað á ný vegna bilaðrar flugvélar
Kynningarfundi umhverfis- og auðlindaráðherra um fyrirhugaðan Hálendisþjóðgarð, sem halda átti á Egilsstöðum í kvöld, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Bilun í vél Air Iceland Connect veldur því að ráðherrann kemst ekki á staðinn.Gul viðvörun á Austurlandi í kvöld
Veðurstofa Íslands hefur sett á gula viðvörun fyrir Austurland en hún tekur gildi í kvöld. Búast má við að fjallvegir verða illfæri og truflunum á samgöngum í kvöld þegar þjónusta hættir. Einnig er varað við því að það gæti orðið nærri stórrstreymt vegna lágs loftþrýstings.