63 nemendur brautskráðir af 14 námsbrautum
Samtals voru 63 nemendur brautskráðir frá Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólanum á Egilsstöðum síðustu helgina í maí.Nei eða já 26. október
Samstarfsnefnd um sameiningu fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi hefur lagt til að kosið verði um sameininguna í lok október. Mikil vinna hefur verið lögð í að greina framtíðarhorfur nýs sveitarfélags í fjármálum.Mikill snjór og fljúgandi hálka á Fjarðarheiðinni í nótt
Mikill snjór, fljúgandi hálka og lélegt skyggni var á Fjarðarheiði í nótt að sögn manns sem fór til hjálpar ferðalöngum þar en komst sjálfur í þann krappann. Björgunarsveitir fylgdu ferðalöngum til byggða.Upplýsingar frá flygildi á Egilsstöðum nýtast til að auka öryggi sjófarenda
Reynsla af notkun flygildis, sem staðsett er á Egilsstaðaflugvelli, við eftirlit á hafi mun gefa gleggri mynd um hvernig nýta megi slík tæki í framtíðinni til auka öryggi sjófarenda og framfylgja lögum. Framkvæmdastjóri Evrópsku siglingaöryggisstofnunarinnar (EMSA) segir reynsluna af flygildinu eiga eftir að nýtast víða í Evrópu.Slæm færð á Fjarðarheiði heldur aftur af ferðalöngum
Vont veður og vetrarfærð á Fjarðarheiði hefur sett strik í reikning ferðalanga úr tveimur skemmtiferðaskipum og ferjunni Norrænu á Seyðisfirði í morgun.Hætt við enn frekari skerðingu þjónustu hjá sýslumanni
Útlit er fyrir á enn frekari skerðingu þjónustu sýslumannsins á Austurlandi ef ekki verður brugðist við fjárhagsvanda embættisins. Bæjarfulltrúar á Fljótsdalshéraði segja ríkið brjóta lög með að standa ekki undir þjónustu og benda á að ekki hafi verið staðið við fyrirheit sem gefin voru við sameiningu sýslumannsembætta árið 2015.Fljótsdalshérað komið undir 150% skuldaviðmiðið
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað hefur náð lögbundnu viðmiðið um að skuldir séu ekki meira en 150% af tekjum ári fyrr en áætlað var. Bæjarstjórinn segir ánægjulegt að hafa náð settu marki en áfram þurfi að gæta aðhalds í rekstri.Uppsagnir hjá Samskipum hafa líka áhrif á Austurlandi
Tólf starfsmönnum var í síðustu viku sagt upp störfum hjá flutningafyrirtækinu Samskipum. Einn þeirra starfaði á Austurlandi.Forritar framtíðarinnar á Borgarfirði
„Tölvurnar komu sér mjög vel. Allir nemendur skólans nutu kennslu í forritun, yngsta stig þó aðeins færri tíma en mið-og elsta stig. Nemendur voru mjög áhugasamir og virkir í kennslustundum og fegnir að líta upp úr hefðbundnu námi,” segir Sigþrúður Sigurðardóttir skólastjóri, Grunnskóla Borgrafjarðar, en skólinn hlaut í desember styrk frá Forriturum Framtíðarinnar til að efla tæknikunnáttu í skólum.