Sviptur ökuleyfi fyrir vítaverðan ölvunarakstur
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann til að sæta sviptingu ökuleyfis í tvö og hálft ár fyrir vítaverðan akstur undir áhrifum áfengis. Litlu mátti muna að maðurinn æki framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt.„Prófastdæmið leggur mikla áherslu á æskulýðsstarf“
Landsmótið er stærsti árlegi viðburður kirkjunnar. Í ár voru þátttakendur um 300 talsins en oft hafa um 700 ungmenni tekið þátt,“ segir Sigríður Tryggvadóttir, prestur á Seyðisfirði, sem kom að vel heppnuðu landsmóti Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) fór fram á Egilsstöðum í lok október.Söluverð fasteigna að nálgast byggingarkostnað
Fasteignasali segir austfirskan fasteignamarkað, einkum á Fljótsdalshéraði, hafa verið óvenju líflegan það sem af er ári. Tvær vikur eru síðan flutt var inn í síðustu íbúðirnar í fjölbýlishúsinu að Miðvangi 6 í miðbæ Egilsstaða.Hissa á að ekki væri lögð meiri áhersla á fjárhagsáætlun í stjórn HEF
Fulltrúi Héraðslistans í stjórn Hitaveitu Egilsstaða og Fella (HEF) gagnrýnir að upplýsingar um fjárhagsáætlun fyrirtækisins á næsta ári hafi verið lagðar fram í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs áður en þær voru afgreidd af stjórn fyrirtækisins. Fulltrúar meirihlutans segir að fullt svigrúm gefist til að ræða áætlun á milli umræðna bæjarstjórnar um fjárhagsáætlunáætlun sveitarfélagsins.Lægri gjaldskrár eða meiri þjónusta?
Meirihluti Fjarðalista og Framsóknarflokks í bæjarráði Fjarðabyggðar fellst ekki á tillögur Sjálfstæðisflokks um breytingar á fjárhagsáætlun ársins 2019. Flokkurinn vill lækka fasteignamatsstuðul, lækka gjaldskrá hitaveitu og fallið verði frá lækkunum á skólamáltíðum. Meirihlutinn segir markmið sitt að auka þjónustu við íbúa.Ekki rétt að fara í sameiningar í kjölfar neikvæðrar könnunar
Meirihluti hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps felldi á síðasta fundi tillögu minnihlutans um að óska eftir aðild að viðræðum fjögurra sveitarfélaga á Austurlandi um sameiningu. Íbúakönnun sem gerð var í vor sýndi ekki vilja Vopnfirðinga til sameiningar.Gerðu athugasemd við að fá fundargerð í stað þess að fundur væri haldinn
Bæjarráð Fjarðabyggðar vísaði liðum af fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar aftur til nefndarinnar þar sem ekki var rétt boðað til fundar nefndarinnar. Formaður nefndarinnar ber við tímapressu en segir að hætt hafi verið við þegar athugasemd barst. Bæjarfulltrúar segja málinu lokið og lærdómur verði dreginn af því.Frumsköpunarkrafturinn kitlaður
„Á námskeiðunum eru þátttakendur leiddir inn í tónlistariðkun á þeirra eigin forsendum. Enginn aðgangseyrir er á námskeiðin sem henta öllum áhugasömum og engar kröfur eru gerðar um grunnþekkingu í tónlist. Við hvetjum þátttakendur til að koma með sín eigin hljóðfæri af öllu tagi,“ segir Karna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Fjarðabyggðar, um námskeið í spuna og skapandi ferli verður heldið í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði næsta sunnudag.„Það var ekki fjárskortur á heilsugæslunni í gær“
„Ég bara trúði þessu varla þegar ég sá þær storma þarna inn,“ segir ferðaþjónustubóndinn Sævar Guðjónsson á Eskifirði, um kind með tvö lömb sem rötuðu inn í húsnæði heilsugæslunnar á Eskifirði um miðjan dag í gær.Metmánuður hjá Gullveri
Togarinn Gullver á Seyðisfirði hefur aldrei landað meiri afla á einum mánuði heldur en í nýafstöðnum októbermánuði. Veiðar hafa gengið vel austur af landinu.Farsímasamband komið á Suðurfirði
Viðgerð er lokið á bilun sem olli því að farsímasambandslaust varð frá Stöðvarfirði til Álftafjarðar í morgun.