13 verkefni björgunarsveita: Þurfti að festa bát á Vopnafirði
Þrettán verkefni voru skráð á austfirskar björgunarsveitir í gær og nótt. Á Vopnafirði þurfti björgunarsveitin að hemja bát sem var að slitna frá bryggju.Rafmagn af nær öllu Austurlandi
Rafmagn fór af nær öllu svæðinu á milli Vopnafirði og Breiðdalsvíkur klukkan kortér yfir tíu í kvöld. Ekki er ljóst hvað olli rafmagnsleysinu en unnið er að því að koma rafmagni aftur á svæðið. Klukkan ellefu sló rafmagni aftur út.Stormur í aðsigi: Haldið ykkur heima eftir vinnu
Veðurfræðingur segir von á glórulausum byl á Austurlandi frá því seinni partinn í dag og framundir hádegi á morgun. Úrkoma verður meiri á Austfjörðum en annars staðar á landinu og vindur vægari.Rafmagnslaust á Jökuldal: Eins og flugeldar nema þeir fóru niður
Íbúa á Jökuldal brá nokkuð við tilþrifamikla blossasýningu á næsta bæ um klukkan hálf níu í morgun en svo varð allt svart, jafnt úti sem inni því rafmagnið fór. Vonast er til að það komist aftur inn um eða fyrir klukkan fjögur.Enginn útköll eystra í vonda veðrinu
Enginn útköll bárust lögreglu eða björgunarsveitum vegna veðurofsans eystra í nótt. Einn slasaðist við að huga að bát í höfninni á Eskifirði í nótt.Landsnet sendi auka mannskap austur
Landsnet hefur sent aukaflokk línumanna til Austurlands til að vera í viðbragðsstöðu til að viðhalda raforkuflutningskerfinu í kvöld. Almannavarnir fylgjast með þróun mála.Fer Höttur stigalaus inn í jólafríið?
Körfuknattleikslið Hattar fékk Stjörnuna í heimsókn í íþróttahúsið á Egilsstöðum í gær. Það hefur sáralítið gengið hjá Hetti í vetur en oftar en einu sinni hafa þeir þó verið grátlega nálægt sigri. Liðið vil oft spila vel stóran hluta leiks en hikstar svo á lokamínútunum og það var nákvæmlega það sem gerðist í gærkvöldi.„Samstarfið um jólasjóðinn er til fyrirmyndar"
Aðstandendur jólasjóðanna á Austurlandi segja söfnun í þá ganga vel, en þó er hverju framlagi tekið fagnandi hendi.