Athafnamenn á Austurlandi undirbúa stofnun brugghúss í Fellabæ undir merkjum Austra. Þeir segja töluverða eftirspurn meðal gesta á svæðinu um staðbruggað öl.
Vegfarendur sem keyra inn Velli frá Egilsstöðum þurfa að fara með sérstakri gát. Þar heldur sig hreindýrahópur sem sýnt hefur mikla fífldirfsku við að þvera veginn, að sögn vegfaranda sem hafði samband við Austurfrétt.
Starfsgreinasambandið hefur boðað til verkfalla dagana 28. og 29. maí og ótímabundins verkfalls frá og með 6. júní. Komi til boðaðra verkfalla falla meðal annars niður ferðir á leið 56 sem gengur til og frá Egilsstöðum.
Á Egilsstöðum var í gærkvöldi skrifað undir samstarfssamning við Jón Björnsson um að taka að sér framkvæmdastjórn fyrir Fjórðungsmót hestamanna á Austurlandi árið 2015 sem haldið verður í Stekkhólma á Fljótsdalshéraði 2.-5. júlí næstkomandi. Fjórðungsmót Austurlands er stærsti og elsti reglulegi viðburðurinn í hestamennsku á svæðinu og er haldið á fjögurra ára fresti.
Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað standa fyrir málþingi um Þjónustumiðstöð Norðurslóða þann 2. júní næstkomandi. Málþingið verður haldið í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði.
Rúmum tuttugu milljónum króna verður varið til uppbyggingar á Teigarhorni í Berufirði á næstunni. Styrkurinn er hluti af átaki ríkisstjórnarinnar til uppbyggingar og verndar ferðamannastaða sem eru í eigu eða umsjón ríkisins.
Lögregluþjónn, sem íbúi á Eskifirði sakar um einelti og ósæmilega hegðun, segir málið hafa reynt mjög á fjölskyldu sína. Íbúinn var ákærður fyrir meiðyrði í kjölfar opinnar færslu sem hann birti á Facebook í maí 2013.
Ríflega 82% þeirra sem greiddu atkvæði í verkfallsboðun verslunarmannadeildar AFLs samþykktu verkfallsboðun. Verkfallið er boðað í samræmi við verkfall VR og fleiri félaga.
Starfsmenn Brammer og Securitas á álverslóðinni í Reyðarfirði hafa hafnað kjarasamningum við undirverktaka á álverslóð. Samningarnir voru samþykktir hjá Launafli, VHE, Fjarðaþrifum, Lostæti, Sjónarás og Eimskip.
Íbúi á Eskifirði er ákærður fyrir meiðyrði gagnvart lögregluþjóni í bænum sem hann segir hafa lagt ákveðna einstaklinga í einelti og sent unglingsstúlkum kynferðisleg skilaboð. Sakborningur lagði sig fram um að færa sönnur á fullyrðingar sínar í dómssal í gær.