Vill bæjarstjórn Fjarðabyggðar að Seyðisfjörður verði endastöð til framtíðar?
Forsvarsmenn bæjarráða Fjarðabyggðar og Seyðisfjarðarkaupstaðar eru ósammála um heppilegustu gangatenginguna fyrir Seyðisfjörð. Formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar lýsti í fréttum RÚV þeirri skoðun að betra væri að byrja á göngum frá Seyðisfirði til Norðfjarðar í gegnum Mjóafjörð með tengingu upp á Fagradal, svokölluðum T-göngum, en formaður bæjarráðs Seyðisfjarðar segir þau hvorki tryggja betri né tryggari vetrarsamgöngur.Eiður Ragnars hættir í bæjarstjórn Fjarðabyggðar
Eiður Ragnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur sagt sig úr bæjarstjórninni. Ástæðan er að hann er að flytja aftur á æskustöðvarnar í Djúpavogshreppi.Af hverju eru Egilsstaðir og Fellabær ekki á Facebook?
Spurning fyrirsagnarinnar hefur kvalið margan manninn á Fljótsdalshéraði um árabil, en fyrir þá sem ekki vita þá er staðreyndin sú að á samskiptamiðlinum Facebook er hvorki hægt að velja Egilsstaði né Fellabæ sem heimabæ sinn.
Mjög jákvæð teikn um möguleika á millilandaflugi
Framkvæmdastjóri Austurbrúar segir „mjög jákvæð teikn á lofti" í viðræðum við stóran breskan ferðaþjónustuaðila um beint flug á milli Egilsstaða og Englands á næsta ári. Næsta viðræðulota verður í ágúst.Eistnaflug: Börn leyfð til klukkan tíu – Skipuleggjandi segir hátíðum mismunað
Tónlistarhátíðin Eistnaflug í Neskaupsstað sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi þess efnis að lögreglustjórinn á Austurlandi hefði ákveðið að börn mættu ekki koma inn í tónleikasalinn á Eistnaflugi. Það er rangt, samkvæmt lögreglunni á Eskifirði. Börn megi vera á tónleikum til klukkan tíu. Skipuleggjandi Eistnaflugs segir tónlistarhátíðum mismunað hvað þetta varðar og nauðsynlegt sé að yfirvöld dragi skýra línu.