Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna.
Hellu- og varmalagnir ehf. sem unnu að byggingu nýrrar bryggju á Djúpavogi, hafa sagt sig frá verkinu. Verkið er um mánuði á eftir áætlun og væntanlega að minnsta kosti hálfur mánuður í að það hefjist á ný með nýjum verktaka.
Tæplega fimmtíu manns sóttu stofnfund Framfarafélag Borgarfjarðar – til móts við nýjan dag, sem haldinn var í síðustu viku. Forsvarsmaður hópsins segir hvatann af félaginu koma frá ungu fólki sem sé að klára nám og hafi mikinn áhuga á að setjast að á staðnum.
Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað skólastarfsmann af ákæru um líkamsárás og brot á barnaverndarlögum eftir að hafa fært nemenda með valdi úr matsal skólans síðasta haust. Áverkar komu fram á hálsi nemandans eftir atvikið en dómurinn taldi ekki nægar sannanir fyrir að þeir stöfuðu beint frá því.
Austurfrétt birtir í dag árlega samantekt á tekjum Austfirðinga. Teknir eru tekjuhæstu einstaklingar hvers sveitarfélags auk nokkurra áberandi einstaklinga úr samfélaginu til að sýna betri þverskurð á samsetningu samfélaganna.
Slóvenskir starfsmenn við byggingu nýrrar bryggju á Djúpavogi eru hlunnfarnir í launum og búa við ófullnægjandi skilyrði. Sveitarfélagið heldur eftir greiðslum til að knýja á um úrbætur.
Ungur karlmaður var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir harðan árekstur tveggja bifreiða sem komu hvor úr sinni háttinni Egilsstaðanesi í hádeginu í dag.
Sturla Þórðarson, skipstjóri á Berki NK, greiðir hæstu opinberu gjöldin á Austurlandi í ár. Þeir tíu efstu búa allir í Fjarðabyggð og eru skipstjórar áberandi á listanum.
Rúmlega 25 milljóna króna tap varð af rekstri Breiðdalshrepps á síðasta ári. Sveitarfélagið stendur illa og ekki virðast forsendur fyrir rekstri þess nema til aðgerða verði gripið.
Karlmaður á fertugsaldri var nýverið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi Héraðsdómi Austurlands fyrir að hafa á heimili sínu tæp 130 grömm af kannabislaufum. Maðurinn sagðist hafa notað efnin til að útbúa sér róandi te en ekki sem vímugjafa.
Norðfirðingar héldu upp á 90 ára afmæli íþróttafélagsins Þróttar fyrir skemmstu. Fyrrverandi formaður segir forustuna sem félagið hafði um byggingu sundlaugarinnar í miðbænum eitt mesta afrekið í sögu þess.