Ert þú verðandi kvikmyndastjarna?
Zik Zak kvikmyndir og Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri Astrópíu leita að fólki frá 14 ára og upp úr í aðal- og aukahlutverk kvikmyndar byggðri á sögunni Gauragangur eftir Ólaf Hauk Símonarson. Fólk getur komið í Sláturhúsið á Egilsstöðum í dag fram til kl. hálffjögur og látið máta við sig hin ýmsustu hlutverk, meðal annars aðalhlutverk sjálfs Orms Óðinssonar.