Hrafna Hanna vann Idol

Hrafna Hanna Elísa Herbertsdóttir, 21 árs frá Djúpavogi, sigraði í Idol stjörnuleit en úrslitin fóru fram í Smáralind í gær.

 

ImageHún fékk 60 prósent af 70 þúsund atkvæðum í símakosningunni. Á móti henni í úrslitum var hin 24 gamla Anna Hlín Sekulic.

Fyrir sigurinn fær Hrafna titilinn Idol stjarna Íslands 2009 auk tveggja milljóna króna í verðlaunafé.

Báðar stúlkurnar sungu þrjú lög í kvöld, eitt að eigin vali, annað sem samið var sérstaklega fyrir kvöldið og hið þriðja sem dómnefndin valdi fyrir þær. Hrafna Hanna flutti ELO lagið Ticket to the Moon, Alla leið eftir Örlyg Smára og Pál Óskar og Ég elska þig enn sem Mannakorn gerði frægt.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar