Skip to main content

Hver er Austfirðingur ársins 2022?

LífiðThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 02. jan 2023 09:41Uppfært 02. jan 2023 09:41

Austurfrétt hefur staðið fyrir kosningu um Austfirðing ársins frá því að vefurinn hóf göngu sína árið 2012. Nú gefst lesendum tækifæri til að tilnefna þá sem þeir telja eiga heima í kjörinu fyrir afrek á nýliðnu ári.


Tekið verður á móti tilnefningum út sunnudaginn 8. janúar en kosningin sjálf fer af stað í kjölfarið.

Tilnefningar er hægt að senda á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., eða koma á framfæri á Facebook-síðu Austurfréttar. Æskilegt er að stuttur rökstuðningur fylgi tilnefningunni.

Eftirtaldin hafa áður verið valdir Austfirðingar ársins á Austurfrétt:

2021: Davíð Kristinsson
2020: Seyðfirðingar
2019: Jóhann Sveinbjörnsson
2018: Steinar Gunnarsson
2017: Ólafur Hr. Sigurðsson
2016: Þórunn Ólafsdóttir
2015: Tara Ösp Tjörvadóttir
2014: Tinna Rut Guðmundsdóttir
2013: Friðþór Harðarson og Sigurður Friðþórsson
2012: Árni Þorsteinsson